Afturkalla eyðingu æfingar

Síðast yfirfarið 30. september 2026

Sumir hnappar í þessum hluta RIVL eru enn sem komið er aðeins á norsku. Þeir eru skrifaðir hér eins og þeir birtast.

Ef þú eyddir æfingu fyrir mistök getur þú fengið hana aftur.

Strax eftir að þú eyddir

Þú eyðir æfingu með því að opna hana og ýta á Slett fra treningsloggen (eyða úr æfingaskránni). Á eftir stendur Økten er fjernet (æfingin hefur verið fjarlægð) neðst á skjánum í 12 sekúndur. Ýttu á Angre (afturkalla) og þá er æfingin komin aftur.

Seinna: Nýlega eytt

Með RIVL Coach eru eyddar æfingar undir Nýlega eytt í 30 daga.

Í forritinu: Farðu í Æfingar, ýttu á plúshnappinn og veldu Nýlega eytt. Ýttu á Gjenopprett (endurheimta) við æfinguna.

Á getrivl.app: Farðu í söguna í Coach og ýttu á Nylig slettet (nýlega eytt). Ýttu á Gjenopprett við æfinguna.

Án Coach getur þú afturkallað á þeim 12 sekúndum sem líða strax eftir að þú eyddir.

Fannstu ekki svar?

Sendu okkur tölvupóst á support@getrivl.app og við svörum þér.